Heilun – Grunnnámskeið
Það er ætlað þeim sem hafa litla sem enga reynslu í heilun eða orkuvinnu.Eftir námið hefur þú kunnáttu og aðferðir til að heila og hjálpa einstaklingum í þínu nánasta umhverfi, fjölskyldu og vinum.
Það sem t.d. verður farið í :
- Við getum öll heilað – hjálpa þér að finna hvar þinn styrkur liggur
- Hvernig á að hreinsa áruna – hvernig áruhreinsun getur létt á verkjum
- Æfðar mismunandi leiðir við að skynja orku
- Hvernig við getum losað um spennu í líkama
- Hvernig við getum fundið að orku/spennu losun hefur átt sér stað við heilun
- Hvernig maður kemur í veg fyrir að missa eigin orku við heilun
- Gengið í gegnum heilunartíma -skref fyrir skref – frá móttöku skjólstæðings til enda tímans
- Hvernig á að byrja og loka heilunar tíma
- Hvernig á að tengja sig og jarðtengja áður en maður heilar
- Hvernig á að setja upp “heilunar rými”
- Hvernig á að taka á því ef heilari missir einbeitingu sína yfir í eigin hugsanir við heilun
- Líkamsstaða og áhrif hennar á skjólstæðing okkar og okkur sjálf
- Hvernig á að vera hlutlaus og ástæða mikilvægis þess
- Hver munur er á orkustöðvum að framan og aftan
- Hvernig á að bregðast við ef skjólstæðingur fer að gráta
- Orsök veikinda og þegar einstaklingar halda í veikindi
- Hugleiðsla og leiðir til að kyrra hugann
- Mismunandi “tegundir” orku
- Hvernig hægt er að verja sig gegn fólki sem tekur frá manni orku í daglegu lífi
- Streituhormón og áhrif þeirra á líkamann
- Hvernig fólk hefur áhrif á okkur og hvað það getur verið að segja okkur
- Við erum aldrei sterkari en grunnurinn okkar – mikilvægi sjálfsvinnu
- Mikilvægi þess að fylgja sínu hjarta og hvernig við sköpum okkar eigin raunveruleika.
- Mismunandi aðferðir við heilun
- og margt fleira…
Ekki er ætlast til að þú vinnir með heilun sem starf eftir grunn námið.
Síðar mun ég halda framhalds námskeið í heilun þar sem dýpkun á kunnáttu mun eiga sér stað og farið verður í “flóknari” aðferðir, skynjanir og sjálfsvinnu.