Rosalegur júní :)
Monday, 9. July 2007
Ég hef verið að brasa í ýmsu síðastliðinn mánuð…aðallega það að ég gifti mig á Snæfellsnesi í lok mánaðarins en einnig hefur verið einstaklega mikið að gera hjá mér í Orkulind. :)
Brúðkaupsferðin verður ekki farin fyrr en í lok september þannig að engar tafir verða á tímum hjá mér í sumar – en svo strax eftir heimkomu úr þeirri ferð fer ég aftur út til USA til að taka þátt í Intensive meðferðarprógrammi og kem heim í lok október.
Í júní var ég líka aðstoðarkennari á frábæru CSTII námskeiði sem David Tomlinson kenndi og gekk öllum nemunum mjög vel – frábær hópur!
Hópurinn var fullur af eldmóð og bíða langflestir nemarnir spenntir eftir að komast á næsta stig!
Svo verður Intensive meðferðarprógramm haldið á vegum Upledger stofnunarinnar á Íslandi 18-19 ágúst og eru enn laus pláss ef þú vilt vera meðferðarþegi þar.
Nýjustu fréttir
Friday, 1. June 2007
Jæja þá er ég komin að norðan þar sem verið var að kenna fyrsta stigið í höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð og sinnti ég þar því hlutverki að vera aðstoðarkennari. Þetta var allveg yndislegur og hæfileikaríkur hópur og ég veit að þeim á eftir að vegna vel!
Næsta stig, CSTII, verður svo kennt í Reykjavík 21-24 júní næstkomandi og mun ég einnig aðstoða þar. Á þessu stigi er farið nánar í höfuðbeinin, í munnvinnu og kenndar ýmsar greiningar aðferðir. Ef ÞÚ hefur tekið CSTI þá mæli ég svo sannarlega með að taka næsta stig!
Einnig vil ég taka það fram að enn eru 2-3 laus pláss í tveggja daga meðferðarprógrammið sem haldið verður helgina 7-8 júli í Reykjavík.
Bless í bili :)