Um mig
Við 13 ára aldur kviknaði áhugi minn á andlegum málefnum, þá aðallega á heilun og markvissri “notkun” steina og kristalla. Heilun hefur verið ástríða mín síðan, sem og að þróa og þroska sjálfa mig.
Ég var annar tveggja stofnenda verslunarinnar Gjafir Jarðar og á þeirri reynslu komst ég að því að ég vildi mikið frekar vinna sem meðferðaraðili en búðaeigandi – sem var mjög góð og gefandi lífsreynsla!
Ég hef í gegnum árin ferðast ég mikið erlendis til að vinna í meðferðarprógrömmum á vegum Integrative Intentions og held áfram að kynna mér og læra hin ýmsu óhefðbundnu meðferðar úrræði. Ég hef unnið á slíkum prógrömmum á Íslandi, Bandaríkjunum, Portugal og Írlandi – hef tekið þátt í 18 prógrömmum.
Undanfarin ár hef ég einnig sótt námskeið í miðlun, trans og transheilun í hinum virta Arthur Findley Spiritual College.
Ég þróaði og kenni grunnnámskeið í heilun og er að þróa framhaldsnámskeið í því.
- Skráður Græðari skv lögum nr 34/2005 og reglugerðum nr. 876/2006, 877/2006.
- Vara formaður Cranio Sacral félags Íslands (CSFÍ) apríl 2009-2014
- Félagi í CranioSacral félagi Íslands sem er partur af BIG (Bandalag Íslenskra Græðara)
- Upledger Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð – CST, CST2, SER1, SER2, ADV, ADV2, TBS, TIDI, CSP (sérhæft fyrir meðhöndlun á börnum), SICS (fyrir skynúrvinnslu vandamál) og CTTB1 (unnið er með glial frumur heilans og mænu til að stuða að “self-correction” í taugakerfinu). Meðferðina vinn ég líka í vatni.
- Aðstoðarkennari (TA) mörgum sinnum á CST1 , CST2, SER1,SER2, Advanced og Barna (pediatric) námskeiðum í höfuðbeina og spjaldhryggmeðferðinni hjá Upledger skólanum og er enn að.
- Barral Institute – NM1 og NM2 þarsem unnið er með taugar í líkamanum – VM1 þarsem unnið er með innri líffæri (lifur, magi, ristill osfv.)
- Chikly Health Institute – LCFS-FM námskeið sérhæft í meðhöndlun á vefjagigt og síþreytu, B1 (Brain 1) sem er sérhæft í að vinna með hina mörgu hluta heilans, HCT1 þar sem unnið er með tilfinningarnar og tengingar til foreldra og forfeðra.
VT-O þarsem unnið er með Tunguhöft og vandamál eftir aðgerðir eða öndunarvélar.
- Heilbrigðisskólinn í Ármúla
- Pranic healing – Advanced level
- Arthur Findley Spiritual College – Hef sótt 7 námskeið þar ýmist í miðlun, trans, líkamlegum trans (physical mediumship) eða transheilun (aðallega í transheilun)
- Meta Medicine greiningartækni – 2 daga námskeið með Richard Flook
- Energy Intergration I, II- samþætting vinnu á líkama og orku á vegum Upledger
- Sálarrannsóknarskóli Reykjavíkur
- Þróunarhópur í Sálarrannsóknarfélagi Íslands
- Námskeið Blái geislinn – lita/kristalla heilun
- Margrét Jónsdóttir – Kristalla/lita heilun
- Orion DNA 1-2 – Vivienne Stibal
- Sidereus Energy healing námskeið (dýraheilun)
- MPRUE master og Grandmaster Reiki vígsla – Elisabeth Frauendorfer
- Crystal Diva vígsla – Peggy Jentoft
- Námskeið í notkun Hemi Sync tækni Monroe Institute – Carmen Montoto